Dísarstaðir

Smile, smile, smile :)

07.09.2007 20:48:24 / hjordiz

Ný síða

Ég er búin að færa mig yfir á mogga bloggið svo þessi síða er dauð í bili held ég bara

http://hjordiz.blog.is/blog/hjordiz/

 Dísus


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 15:48:07 / hjordiz

Þetta er ógeðslegt en mjög satt...!!!

Þetta er sem sagt ljóð sem að fannst í íbúð hjá 21 árs stelpu sem að dó úr of stórum skammti af því sem að kallast Crystal Meth.....ég veit ekki alveg hvað það er svona á íslenskum mælikvarða kannski methadón er ekki viss.....en jeminn eini það hljómar ekki vel!!!!

Endilega lesið þið.....


Meet Mr. and Mrs. Crystal Meth.


I destroy homes – I tear families apart.
I take your children and that’s just a start.
I’m more valued than diamonds, more precious than gold.
The sorrow I bring is a sight to behold.
If you need me, remember, I’m easily found.
I live all around you, in school and in town.
I live with the rich, I live with the poor.
I live just down the street and maybe next door.
I’m made in a lab, but not one like you think.
I can be made under the kitchen sink,
In your child’s closet, and even out in the woods.
If this scares you to death, then it certainly should.
I have many names. But there’s one you’ll know best.
I’m sure you’ve heard of me, my name is Crystal Meth.
My power is awesome, try me, you’ll see.
But if you do, you may never break free.
Just try me once and I might let you go.
But if you try me twice, then I’ll own your soul.
When I possess you, you’ll steal and you’ll lie.
You’ll do what you have to do, just to get high.
The crimes you commit for my narcotic charms,
Will be worth the pleasures you feel in my arms.
You’ll lie to your mother; you’ll steal from your dad.
When you see their tears, you must feel sad.
Just forget your morals and how you were raised.
I’ll be your conscience, I’ll teach you my ways.
I take kids from their parents; I take parents from their kids.
I turn people from God, I separate friends.
I’ll take everything from you, your looks and your pride.
I’ll be with you always, right by your side.
You’ll give up everything, your family, your home.
Your money, your true friend, then you’ll be alone.
I’ll take and take till you have no more to give.
When I finish with you, you’ll be lucky to live.
If you try me, be warned, this is not a game.
If I’m given the chance, I’ll drive you insane.
I’ll ravage your body; I’ll control your mind.
I’ll own you completely; your soul will be mine.
The nightmares I’ll give you when you’re lying in bed,
And the voices you’ll hear from inside your head.
The sweats, the shakes, and the visions from me.
I want you to know these things are gifts from me.
But then it’s too late, and you’ll know in your heart
That you are now mine and we shall not part.
You’ll regret that you tried me (they always do).
But you came to me, not I to you.
You knew this would happen.
Many times you’ve been told.
But you challenged my power,
You chose to be bold.
You could have said no and then walked away.
If you could live that day over now, what would you say?
My power is awesome, as I told you before.
I can take your life and make it so dim and sore.
I’ll be your master and you’ll be my slave.
I’ll even go with you when you go to your grave.
Now that you’ve met me, what will you do?
Will you try me or not? It’s all up to you.
I can show you more misery than words can tell.
Come take my hand, let me lead you to HELL.

Já þetta er sko það sem að alvarleg dópneysla getur gert fólki....svo ég ítreka það en og aftur.....MAÐUR PRÓFAR EKKI!!!! 8|

Kv. Dísus


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 00:04:00 / hjordiz

Ugla sat á kvisti....

Já...ég hef hugsað mér að blogga aldrei þessu vant...en ég ætla samt að vara ykkur við. Ég veit ekki hversu lengi þessi síða lifir eftir þetta. Ekki verður mikið um blogg í sumar og ég hreinlega veit ekki hvort að ég nenni þessu eftir það. En við sjáum nú bara til.

Allavega...ég er sem sagt komin heim í Víkina góðu og það byrjaði bara nokkuð vel með góðu sumardjammi á Klaustri um helgina. Ég sé fram á mjög gott sumar....og núna þegar allir eru komnir heim eftir útlandaferðir þá er bara um að gera að byrja þetta og eitthvað er nú verið að tala um að fara á Humarhátíð á Höfn ekki næstu heldur þar næstu helgi...er eitthvað vit í þessu??? :D

Í síðustu viku kom ég heim frá Danmörku og það var ekkert smá næs úti...20 til 30 stiga hiti allan tíman og glampandi sól...já mig langaði sko ekki mikið heim í kuldan!

Ég fór sem sagt í fyrsta skipti ein til útlanda og þótti það nú bara ansi gaman...enda á ég mikið af fjölskyldu og vinum þarna úti. Ég var í Kaupmannahöfn, Ringsted og Odense og það var alveg frábært á öllum stöðum :D og það var mest bara legið í leti, verslað og dinglað sér í sólinni...:haha: En ég verð að segja það að Danmörk er sko alveg staður sem að ég gæti hugsað mér að búa á!!

Ég er svo að vinna með Söru Lind í sumar á vöktum og það á eftir að vera fjör hjá okkur enda erum við báðar steiktar og getum látið eins og fífl við öll tækifæri hehe :D Ég get ekki beðið :P En vaktirnar byrjuðu á föstudaginn og það er ekki mikið að gera ennþá...kannski aðeins yfir hádaginn en ekkert á kvöldinn þannig að við verðum að finna okkur eitthvað skemmtó að gera á kvöldvöktunum...anyways...góð saga þetta :D

Þórir Örn Björnsson er í viku heimsókn hjá okkur núna meðan foreldrar hans og bróðir eru í New York að spóka sig. Hann er sko aldeilis hresst barn.....og náttúrulega aaalgjört yndi. Hann var einmitt núna áðan að segja nafnið mitt í fyrsta skipti þar sem að hann tengdi það við mig....það er svo gaman þegar þau eru á þessum aldri og alltaf að læra eitthvað nýtt. Hann er allavega alveg eins og hvirfilbylur um allt hérna og heillar heimilsfólkið á bakkabrautinni alveg upp úr skónum með brosinu einu saman :)

En ég hef nú ekki meira að segja í bili....en ég skal láta vita ef að eitthvað markvert gerist í lífinu hjá mér :P....ætla samt ekki að lofa neinum rosa sögum svo sem...en eitthvað til að halda ykkur við efnið hehehe :D

Kv. Dísa ljósálfur í sumarskapi :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 21:11:19 / hjordiz

Haha...var að taka þetta hér :P

 

which sex and the city character r u? (with picz)

you're a samantha!! you r the life of the party!! you're not afraid to speak you're mind!! you're fun and wild and alot of ppl love your attitude!! you're just living ur life to the fullest!! you also like having alot of guys for fun but ur not looking for anything serious!! you're friends love you for being so fun and wild!!
Take this quiz!

Quizilla | Join | Make A Quiz | More Quizzes | Grab Code

 

Kv. Dísa :P


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 12:14:35 / hjordiz

Hehe...ég er löt við bloggið :P

Og bara að láta ykkur vita að það fer sko ekki batnandi með hækkandi sól ;)

Fréttir..hmmmm það er núna búið að ákveða að ég verð í Vík í sumar jei jei jei...það gleður :P Og það er komið svo mikið sumar núna að ég er alveg að verða brjáluð að komast til Víkur og vera í rugli alla daga, fara á útihátíðir, sundferðir í gömlu laugina....já það er eiginlega hægt að telja endalaust upp :D

Þessir sumar dagar sem eru búnir að vera hérna eru samt búnir að fara í það hjá mér að liggja heima og geta ekki hreyft mig þar sem að hiti og hausverkur bíður ekki uppá mikli maraþon hlaup :$

Núna fer að koma að því að maður eldist einu sinni enn....og mig langar alveg endilega að halda smá svona osta og bjór veislu hérna heim fyrir þær stúlkur sem vilja joina mér....kannski horfa svona með öðru auganu á ungfrú Ísland í leiðinni....því AUÐvita horfi ég á hana Bexy mína ;) Sorrý að ég get ekki komið samt kjútí :(

En hvað segið þið stelpur mínar?? Ég veit að útskrift er nú á dagskrá hjá mörgum þennan dag eða daginn eftir en þær sem hafa kannski ekkert að gera....hvernig er með þær hehe :P

Dem....verð að skrifa þetta hérna niður þar sem að þetta er að gerast svona eins og NÚNA...en já....hvernig er hægt að ganga á háhæluðum skóm þegar maður er bara eitthvað að HANGA heima hjá sér...og þó svo að þetta væru bara skór sem að heyrðist mikið í þá myndi það samt gera mig brjálaða. Þannig er sem sagt mál með vexti að daaaman hérna fyrir ofan ákveður alltaf af og til að ganga skóna sína TIL heima hjá sér í tíma og ótíma...allavega gengur hún MIKIÐ í svona "klikk klakk" skóm eins og ég vil kalla þá :haha: Og nú skal tekið fram að við búum í eins íbúðum og þegar maður gengur í svona skóm á BEEEERGMÁLAAAR það um ALLA íbúð og þetta gerir hún að meðaltali einu sinni á dag...getur einhver gefið mér skýringu á svona atferli?? Og þetta já sem sagt heyrist í öllum íbúðunum þrem sem eru hérna á neðstu hæðinni...við ættum kannski að taka þetta háalvarlega mál upp á næsta húsfundi og skamma hana fyrir mont á skóm 8)....

VÁ þetta var góð saga...vonandi líður ykkur betur eftir að hafa lesið hana :lol:

Ég á ekki fleiri góðar sögur í bili...þið verðið að láta ykkur þetta nægja...meira að segja kannski bara þangað til í haust...hver veit...

Bless í bili....

Dísa sí-lasna 8|

p.s. endilega kjósið í skoðanna könnunni :P


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 18:40:39 / hjordiz

hehehe ég fékk skammir frá Helak :D

Jæja þá Helena mín ég skal kannski bara blogga :P

Humm....það eru náttlega búnir páskar og eins og allir tveir sem að þekkja til mín og sem skoða þetta blogg vita þá var skellt sér á ball í njálsbúð...og það var með eindæmum hresst 8) Við Þorgerður stóðum í því fyrsta klukkaran eða svo að vera MÖKKANDI milli rútu og húss til að geta skellt í okkur smá tequila :D enda vorum við orðnar vel skrautlegar..og vorum by the way í DJÚPUM samræðum á leiðinni á ballið í rútunni hehehe...það vill sko enginn vita um hvað við vorum að ræða hehehe :D Jæja...restin af páskunum fór svo bara í það að liggja í leti, rúnta og éta :haha: Djöfull var það næs :)

Eftir páskafrí var bara vinna vinna og ég fór líka á Ungfrú Reykjavík sem var bara ansi gaman. Var að horfa á hana Berglindi Elvu mína og hún var laaang flottust :P

mæli með því að þið skoðið myndirnar á www.ungfruisland.is :)

Það geeetur verið að ég verði í Vík í sumar....jeij jeij jeij :D...ef svo fer þá get ég ekki beeeeðið :D ohhhh ég get bara ekki beðið eftir sumrinu....tjaldferðir, böll, BIRTA allan sólarhringinn, grilluð víkurdjömm inn í miðri viku og svo auðvita ÞJÓÐHÁTÍÐ Í VESTMANNAEYJUM 2007 :D..... það verður hápunkturinn eins og alltaf :P

En já...þessa vikuna er ég svo að leika housewive því ég á að vera með litlu hennar Systur minnar nema á sumardaginn fyrsta audda...því maður fer AUÐvita á djammið á miðvikudagskvölið hehehe :P Það er víst partý hjá Tinnu nokkurri Hrund...sem maður veit vart hvort er lífs eða liðin :P djóóók ;) En já þau skötuhjúin ætla víst að vera með smá teiti og ég hlakka bara til :D En já....og annars þarf ég að vera með krakkan sem er reyndar búið að vera allt í fínu í dag....náði að taka til og versla inn og svona...og þær stelpurnar bara nokkuð góðar á meðan :P

Og þá er bara að ákveða hvort á að elda hakk eða lasagne í kvöld :P

Já....ekki meira í bili

Later Dísa 8)


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 23:45:47 / hjordiz

Einmitt, Sko, Nákvæmlega

Já þessi orð eru farin að fara alveg óstjórnlega í taugarnar á mér þessa dagana jafnvel þó að ég noti þau alveg fáránlega mikið sjálf :S En þegar maður er að vinna í vinnu þar sem að meiri hluti viðskiptavina eru konur þá kemst maður ekki hjá því að taka eftir þessum orðum. Og já þá eru það mest megnis KVENNFÓLK sem að segir þetta....við erum greinilega bara svona óþolandi :P Hvernig stendur á því samt. Það er kannski svona helst þetta náááákvæmlega sem að heyrist mest eins og fólk þurfi að samsinna öllu sem maður segir eða hefur rétt fyrir sér um. Við systir mín fórum að ræða þetta í dag og á örstuttum tíma þá vorum við búnar að segja öll orðin þrjú án þess að fatta það fyrren eftir á og algjörlega grenjuðum úr hlátri á eftir. En það er bara þannig að það er ekkert smá erfitt að venja sig af þessu sérstaklega þar sem að 75% af íslensku kvennfólki notar þetta í tíma og ótíma (og kannski nokkur helvíti líka ég skal ekki segja :P ) En jæja nóg af þvaðri um íslenZkt mál :)

Ég er búin að vera lasin og það er örugglega það leiðinlegasta sem ég geri. Ísfólkið er gjörsamlega búið að bjarga mér enda er ég að lesa tvær til þrjár bækur á dag...ehem sem að er eflaust ekki eðlilegt en það verður bara að hafa það :haha: Og ég fæ bara að fara í tölvu einu sinni á dag þegar systa ákveður að gera eitthvað annað en að læra. Tölvan mín er ennþá biluð og það er nú eiginlega mér sjálfri að kenna því að ég nenni ekki að fara með hleðslutækið í viðgerð :$

Svo á maður víst að fara á ball annað kvöld og ég verð að segja að ég hlakka nú soldið til. Langt síðan maður hefur farið á alvöru sveitaball svona fyrir utan þorrablót en ég tel þau ekki með því að þar eru bara dansaðir gömlu dansarnir og maður er nú ekkert að SLEPPA sér að syngja með lögunum þar eða allavega ekki ég :P En ætla ekki allir að fara á dansiball??? Einhver staðar heyrði ég að það ættu að vera sætaferðir sem að er nú aldeilis ekki verra enda alltaf stuð þegar maður fer í sætaferðir :)

Og svo eru komnir páskar ekki það að ég sé neitt yfir mig spennt. Páskarnir hafa einhvern vegin aldrei höfðað til mín sem hátíð...jú jú ég var spennt yfir páskaeggjunum þegar ég var krakki en það var nú ekki mikið meira. Og samt myndi ég telja mig alveg soldið trúaða eða allavega upp að vissu marki. En annars las ég ansi áhugavert efni núna um daginn sem að voru einhverja vangaveltur um eitt og annað og þar á meðal krossfestinguna. (og nú má trúaða fólkið ekki krossfesta mig því ég er bara að spá í þessu hehe :) ) En já Jesú var krossfestur og var látin þjást fyrir mannkynið eða það er það sem krossfestingin táknaði eftir því sem ég best veit, þar var hann látin hanga í sólarhring eða svo skv. öllu sem maður les í biblíunni (ekki það en maður veit varla hvað er skáldskapur í því blessaða riti svo sem) En já...hann var látin þjást í sólarhring og fyrir hvað var aumingja maðurinn látin dingla þarna....það er til fólk sem að þjáist á hverjum degi og er kannski búið að þjásta af hræðilegum sjúkdóm eða einhverju þaðan af verra í marga mánuði ef ekki mörg ár...þess vegna spyr ég...fyrir hvað var Jesú greyið að þjást ef maður lítur é sumt fólk í dag. En jæja....það er kannski komið nóg af þessu röfli í mér....og ég hef alls ekki ætlað mér að vera með neina fyrirlestra hérna....þetta eru bara vangaveltur og ekkert annað ekki var ég upp fyrir tvöþúsund árum og sá þetta gerast svo ekki get ég dæmt eitt né neitt.

Svo vonandi særði ég engan með þessu og vonandi nennir fólk að lesa þetta rugl hjá mér...ætli ég sé með hitaóráð :$8)

Kv. batnandi Dísu :haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 20:54:56 / hjordiz

Hehehe.....varð að skella þessu inn :P

Var að skoða á netinu að vanda og rakst á svo fyndna færslu á einu moggablogginu...alveg hreinlega grét úr hlátri þar sem að þetta er svo satt :D:D....svo ég ákvað að vera sek um smá ritstuld og vera svo góð og setja slóðina hjá þessari litlu flugu fyrir neðan :P

hvað er málið með sápuóperur? Tökum Bold and The Beautiful sem dæmi. Afhverju setur Ridge alltaf upp svipinn (THE look) eftir hverja senu? Hann lyftir annarri augabrúninni, hallar örlítið undir flatt og framhjá myndavélinni með hálfgerðum spurnarsvip/glotti?  Svona "ég-er-búinn-að-kúka-í-buxurnar-en-ætla-sko-ekki-að-tapa-kúlinu-svip". (Ég kalla þennan svip gjarnan "Þórhallssvipinn"... don't ask me why.)

Og afhverju ... þegar tvær manneskjur eru að tala saman ... snúa þær báðar í sömu áttina?  Önnur talar alltaf við hnakkann á hinni.  Ekki eru það mannasiðir!?  Eða þá að fólk á heilu samræðurnar við sjálft sig og hlær jafnvel hrossahlátri og ygglir brýrnar.  Það væri búið að loka mann inni ef maður léti svona.

Og afhverju gerast allar senurnar annaðhvort inni í stofu, svefnherberginu, í bakgarðinum við sundlaugina eða á skrifstofunni?  Fer þetta fólk aldrei á klósettið eða inn í þvottahús eða bara út úr húsi almennt? Fer það aldrei að versla í matinn, með bílinn í viðgerð eða til tannlæknis?  Ekki það, að ég hefði mikinn áhuga á að horfa á Ridge í einhverri harðlífssenu eða í tannholdshreinsun.  Ég er bara að spá.

Allar þessar spurningar eiga eftir að halda fyrir mér vöku. 

Höf - http://hugarfluga.blog.is/blog/hugarfluga/

 Fannst þetta svo RÉTT :P....

Annars var að koma helgi og það FRÍ HELGI í þokkabót...djöfull er ég ánægð með það. Það á víst að fara að draga mig á skauta í skautahöllinni á morgun við skulum nú sjá til ef að ég verð ekki lúllandi einhver staðar til 6 eins og síðustu helgi :P...annars er enginn í bænum til að koma með mér niðrí bæ svo að ég veit ekki hvað ég geri. Ég ætla allavega að bögga Jónu Huldu með nærveru minni og það er EKKERT sem hún getur gert í því múahahaha :D

Hvað er annars að gerast um helgina?

Kv. Dísus

p.s vinsamlega kjósið í nýrri könnunn því ég get ekki ákveðið hvaða mynd ég á að sjá..


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 20:51:41 / hjordiz

Jæja þá...ég skal þá blogga...

Það er bara ekki svo mikið innihaldsríkt að gerast í lífi mínu núna. Árshátíð Nordica var um síðustu helgi og ég skemmti mér bara ágætlega þar. Góður matur og svna sem að ég gat reyndar ekki komið niður eftir forrétinni. Annað hvort hef ég étið of hratt eða hörpuskel fer ekki vel í mig :P

 Litla yndið mitt (tölvan mín) er ekki í sambandi núna í beinni merkingu. Hleðslutækið er eitthvað að bila aftur :( Þess vegna hef ég ekkert verið að blogga.....ég er vissum að þið söknuðu þessara snilldar skrifa mikið :|

En jeminni eini...man einhver eftir tölvugæludýrunum??? Ég fékk alveg heljarinnar flash back núna áðan þegar Jónína systir mín gerðist svo elskuleg að kaupa eitt fyrir dóttur sína hehehe :D Já...ég minnist þess að ég átti andarkvikindi fyrir svona gæludýr :P Hverjir áttu svona??? Rétt upp hönd :D

Annars breytti ég útaf vananum í fyrsta skipti í langan tíma um helgina og fór inn á Pravda aldrei þessu vant. Jesús minn hvað er hræðilega leiðinleg tónlist þar :o Það er sem sagt sami takturinn ALLAN tíman og svo heldur DJ-inn að hann geti breytt þessu eitthvað með því að spila Justin Timberlake lög undir en lag línan í því lagi heyrist ekki af því að helvítis basstakturinn ræður öllu þarna. Eftir sama taktinn en 5 mismunandi "lög" þá fékk ég ógeð, lét bjóða mér í glas og HLJÓP yfir á elsku Hressó hehehe :D....En það var einhver staðgengils DJ þar það kvöldið svo að það var svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir heldur en samt betra heldur en sama "búmmið" í fjóra tíma :haha:

En eins og ég segi þá er tölvan mín biluð svo að ég á örugglega ekki eftir að vera dugleg að blogga á næstunni...vonandi lifið þið af án mín :$ Ég ligg sem sagt heima öll kvöld núna og les ísfólkið....í þriðja skiptið um ævina...I know very sad...en það er döfull gaman að lesa þetta :P Ekki rétt Þorgerður mín :haha: Og þar sem að Sólborg keypti alla seríuna um daginn þá býst ég við að þetta sé ekki í síðasta skipti sem að ég les þetta....nema ég drepist þá eða eitthvað :lol:

Já...nóg af þvaðri :P

Góðar stundir

Dísa 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 21:47:58 / hjordiz

Bústaðaferð....:D

Jææææja...stelpubústaðurinn mikli á morgun og ég held að við séum bara allar að gera á okkur úr spenningi. Jóna mín...þú verður bara að vera á verkjalyfjum alla helgina hehehe :P...annars mæli ég með hvannarótarmeðali..það er HELL vont á bragðið en virkar samt :)

Það verður fjör í þessum bústað og AUÐvita er mottóið : What happens in girls "bústaður" stays in girls "bústaður" HAHA :haha: ekki rétt???

Annars er ég búin að fá lítugjöfina í hús á bara eftir að fín pússa þetta. Svo að elskurnar þið kannski sem eruð ekki búnar að borga mér....borgið mér kannski svona á næstunni svo að ég DEYI ekki þessum mánuði 8|

Reikningsnúmer: 317-26-2505

Kennitala: 250585-2259

Annars á ég svo sem ekki eftir að eiga rassgats pening í þessum mánuði :S Það er svo árshátíð Nordica Spa um næstu helgi og það á sko eftir að verða HRESST :D Hlakka til 8) Hún verður haldin í salnum í Iðu húsinu niðrí bæ svo ég AUÐvita mökka bara á djammið með ykkur kvikindunum eftir á :haha:....maður nennir nú ekki að hanga á einhverju gala balli alla nóttina :P

Eru þið kvikindin sem eigið ammæli í mars og apríl ekki síðan að fara að halda upp á það á næstunni :D??? Mikið er ég spennt :P...ekki væri úr vegi fyrir ykkur kannski að leigja bara kaffið heim í sveitinni og takk eitt almennilegt Víkurdjamm svona til tilbreytinga :D Eða hvað finnst ykkur...annars ætla ég nú ekki að fara að ráða því :P Spurning samt hvort ég ætti ekki bara að mökka þessu af með ykkur þar sem að flestir verða að útskrifast á ammælisdaginn minn á þessu ári og því lítið um hátíðarhöld í tilefni þess hehe :D

Jæja ekki meira í bili...þetta var lengra en ég hélt :P

Kv. Dísa skvís


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 23:00:44 / hjordiz

Fæææææn!!!

En ein helgin búin og maður BÍÐUR sko eftir næstu þar sem að pjöllubústaður er á dagskrá þá :D...held að við séum allar orðnar of spenntar bara eða eitthvað :P

Helgin var nú svona bara dash róleg hjá mér. Ég var að passa Önnu Betu á föstudaginn og bara eitthvað að hangsa. Svo í gær var ég að vinna og um kvöldið vorum við Andrea alveg heillengi hérna í Hvarfinu að búa okkur á djammið og spjalla bara :P. Við fórum svo í partý í stólalausu íbúðina hans Sigga litla :D.....það var nú bara ágætt. Svo var mökkað niðrí bæ að vanda. Annars var þetta nú ekki eins hresst djamm eins og það hefur verið hjá mér síðast liðnar helgar svo sem en þetta var nú bara ágætt. Það reyndi einhver ítalskur stubbur við mig á dansgólfinu og ég hef nú bara aldrei verið jafn hneyksluð sko..."gave him the look" og þá drullaðist hann í burtu en reyndi alveg nokkrum sinnum aftur...en ég hunsaði hann bara, hann var örugglega höfðinu minni heldur en ég 8|...helvítis ítalir...svo eftir djamm mökkuðum ég, Andrea og Jón Orri í 10-11 á móti hressó og Jón Orri MISSTI sig í kaupum á einhverju DRASLI!!! Maísbaunir, eldsnöggt með Jóa fel og tuc kex var lítill partur af því sem hann keypti og líka skoppara bolti sem að blikkar en ég stal boltanum af honum þegar hann var byrjaður að kasta honum út um alla verslun :P  Svo var ég að komast upp í bæli þegar sólin var byrjuð að koma upp hehehe :D og svaf svo bara og svaf til fjögur í dag :P

Annars fór ég í bíó áðan með Drésa Karls mínum á Music and Lyrics. Stelpur mínar, ef þið viljið sjá góða rómantíska gaman mynd þá er þessi mynd pottþétt málið. Ef þið viljið sjá einhverja snilld þá myndi ég ekkert vera að hafa fyrir því að fara á hana hehehe :P

Það eru samt svo margar góðar myndir í bíó núna...ég veit bara ekki á hvaða mynd ég á að fara það er úr svo mörgu að velja :S...ef að þið eruð með hugmyndir um hvaða mynd sé best þá bara vinsamlegast kommentið þið um það :D Hvaða mynd er málið??? :haha:

Ætla að skella inn mynd af litla dúllu frænda mínum honum Þóri Erni hérna í lokinn og sýna ykkur hvað hann hefur stækkað. Hann er að verða EINS ÁRS núna í lok mars....Jeminn eini hvað tíminn líður hratt 8|

Þórir prakkari :)

Ekki meir í bili...

kv. Dísa


» 21 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 22:03:56 / hjordiz

HELLUÐ HELGI :P

Já þetta var sko helluð helgi. Þegar við vinkonurnar komum saman ...jeminn eini...við getum nú bara alveg eins sleppt þessu sko :D

Sigrún kom frá Kárahnjúkum og við vorum í rugli að vanda....8)

En já..ég nenni eiginlega ekki að segja frá neinu þessa helgi. Það var FEITT rugl bæði á föstaranum og laugaranum og þar við situr :P

Jæja...þessi vika verður svona nokkuð venjuleg...vinna og sofa en annars er ég að fara í kokteilboð á morgun. Förðunarfræðingurinn frá Clarins í París er að fara að koma og sýna okkur nýjustu make-up línuna frá Clarins og það verður kampavín og svona í boði :D...þarf maður að vera fínn í kokteilboðum ??? Ég hef aldrei farið í svoleiðis :S

Já...það eru hugmyndir uppi um það að hafa "dóta" kynningu í píkubústað...Helena og Berglind komu með þessa prýðishugmynd...en það þarf náttlega að vera staðfest að fólk ætli sér að versla eitthvað á henni þar sem að það er frítt að fá einhvern gaur í hús að kynna tólin :P...svo hvað segið þið um það stúlkur mínar sem eruð að fara??? Mynduð þið kaupa eitthvað á svona kynningu eða hvað??? :D Maður hefur alltaf not fyrir svona og það er alveg HELL gaman að hafa svona kynningu :haha: Svo er þetta líka nánast í byrjun mánaðar svo það eiga örugglega flestir penge :D haaaa??

Ef að það eru fleiri svona snilldar hugmyndir um hvað er hægt að gera í bústaðnum þá eeeendilega komið þið með þær ;)

Jæja...nóg komið af þessu kjaftæði :P...ekki það að ég segji yfirleitt mikið í bloggunum mínum en svooona :P...

Kvittið þið lömbin mín ;)

Dísa 8)


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 23:21:14 / hjordiz

Ég hef hugsað mér að blogga núna :D

Mmmmm tölvan mín er ný uppgerð og fín...búið að eyða öllu útaf henni og setja allt nýtt inn...það er ÞOKKALEGA NÆS :D Og vitið hvað annað er þokkalega næs. Hannibal Rising - nýja Hannibal Lecter myndin. Sérlega blóðug og skemmtileg :P Mæli með henni.

Já ég var sem sagt að koma úr bíó :D Ég, Tinna, Jóna, Áslaug og uuu já ég man ekki nafnið á síðustu stelpunni :S...biðst innilega afsökunnar á því :P...skelltum okkur á myndina, hittum Maggs og Fannar þar líka. Þessi franski gaur er alveg helvíti sækó sem Hanni litli Lecter :P

Síðasta helgi var grrreat....djöfull er gaman þegar allir Víkur krakkarnir koma saman á djammið og auðvita fleiri :D Annars fór ég líka á djammið með snyrtifræði bekknum mínum það var alveg helvíti gaman að hitta þær allar aftur svona saman. Hef bara ekki hitt sumar þeirra síðan við útskriftina í vor 8|

En óðum líður að stúlkna bústað og ég þarf að fara að gera verðlaun stúlkur mínar...hverjar eru með í þessu??? Þarf að vita það sem fyrst held að þetta kosti svona 1500 til 2000kr á mann. Verður nú eflaust ekki mikið meira en það :)

Hmmm hef ég meira að segja....vinnan er venjuleg, yfirleitt fullbókað á mig og það er rosalega fínt. Þá líður tíminn hratt og ég kemst heim í tölvuna 8) Ég held að ég sé of háð tölvunni minn :$ Meðan Sólborg var að laga hana í gær þá var ég gjörsamlega að klebra 8|

Jæja....

Later á að segja meira....HVERJIR eru þessir HUNDRAÐ manns sem eru að koma hérna inn...8|

Kvittið þið nú krúttin mín...ekki vera hrædd ;)

Kv. Dísa Dúkkulísa..

(sáu þið það...sáu þið hvað ég gerði þarna með rímið HAHAHA. :lol: ég er steik 8) )


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 13:39:25 / hjordiz

Jámm...

Ég nenni eiginlega engan vegin að koma með eitthvað svaka blogg um þetta ball...þið getið bara farið inn í www.blog.central.is/helenasm þar sjáið þið allt um þetta :D....en kannski maður komi með nokkra punkta um ballið :haha:

  • Partý stand heima hjá Sigrúnu fór vel og engin stofuborð brotin....
  • Svo mökkuðu allir sér í rútuna og það þurfti meira að segja enginn að labba niðrúr...það var bara fullt af bílstjórum þarna :D
  • Sumir létu rútuna bíða meðan þér gúlpuðu kvöldmatnum uppúr sér fyrir utan rútuna og þurftu svo að taka á því til að fara ekki að "lúlla" á leiðinni híhí
  • Gítar var með í för og fólk söng misvel vegna ölvunar :D
  • Maður sá ekki suma á ballinu sökum æsings á litlum drengjum en svo vildi sú hin sama ekkert með hann hafa þegar dansinn hætti haha :haha:
  • Sumir reyndu við mæður annarra :lol:
  • Árlegt sturtu steikelsi var tekið hehehe :D
  • Sumir voru mökkandi á eftir öllum stelpum sem vildu ekkert með þá hafa 8)
  • Sumir drukku svo mikið að þeir muna EKKERT :P
  • ALLIR dönsuðu af sér fæturnar við HELGU MÖLLER!!!
  • Sumir voru í því að dansa við gömlu kallana og ég og Gunnar Pétur DÓUM úr hlátri :haha:
  • Ölvun var mikil en þó alveg á góðum mælikvarða
  • Annars var ekki mikið um rugl á þessu balli
  • Daginn eftir var étinn FEITUR hammari :P

Já...ég nenni ekki að segja meira :P

Kvittið þið nú litlu kvikindi ;) Ég er forvitinu um hverjir eru að koma hérna inn...ekki vera feimin :)

Dísa Skvísa


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 23:08:42 / hjordiz

Frí helgi - ball í tunguseli

Jæja....aftur komin frí helgi :D....djö hvað tíminn líður hratt 8| Anyways....

Það á sem sagt að skella sér austur um helgina aldrei þessu vant...kíkja á foreldrana og AUÐvita skella sér á Þorrablót í tunguseli :)....það eru sætaferðir úr Vík by the way...ennþá eru 8 sæti laus ef einhver hefur áhuga :D Tungusels blótið var snilld í fyrra og þetta á að vera ennþá betra er haggi???

Ég var að koma úr Pool með Sigrúnu, Gísla, Rút, Ólöfu og Steina...djöfull var það hresst :) Maður verður að fara oftar í pool :P...Mæli með Poolstofunni Lágmúla..bara á bak við Nordica Hótel :D

En og aftur þarf ég að tala um Heroes hérna....sko það verður að ítreka þetta....ÞAÐ VERÐA ALLIR AÐ HORFA Á HEROES :D...ekki rétt Andrea mín :haha: Þetta er svo spennandi að ég er að missa mig yfir þessu :P Það eru komnir 14 þættir og ég get ekki beðið eftir þeim 15 :haha: :haha:

Svo styttist óðum í pjöllu bústaðinn :D...það er náttúrulega bara snilld. Lítur mínar...ég er með smá hugmynd sem ég þarf að bera undir ykkur....um soldið sem ég ætla að gera fyrir allar líturnar :D...sko þetta er soldið sem okkur langar allar alveg örugglega að eiga en það þarf að borga smávegis fyrir þetta...ef að þið eruð tilbúnar í það....en ég ætla samt ekki að segja hvað það er strax hehe :P En ég veit að þið verðið ánægðar með það :D Hvað segið þið???

En ég hef nú ekki meira að segja í bili nema

Tinna elskan...láttu þér batna....við munum sakna þín á ballinu ;)

Later....Dísa 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan